Vegna fréttar af fyrirhugaðri ferð Ásgeirs Þórs Davíðssonar á James Bond-tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstkomandi laugardagskvöld vill Bridgeklúbburinn BOB fá að koma eftirfarandi á framfæri:
„Bridge-klúbburinn BOB hélt árshátíð fyrir skemmstu og gæddi sér á dýrindis kræsingum í heimahúsi í Hlíðunum. Tekið var í spil að vanda og skemmst frá því að segja að bæði stóðust geim og slemmur á alla kanta.
Þessi fráni Bridge-klúbbur hefur reynt að hittast vikulega í vetur en hátíðastundir sem þessar hafa verið fleiri á undanförnum árum en 2011.
Þetta stendur þó til bóta því meðlimir í BOB, sem eru allt greindar konur á fertugsaldri, ætla að skella sér í sumarbústaðaferð á árinu og jafnvel með fyrirframgefin spil svo hægt sé að mæla betur árangur liða.
Það er virkilega til frásögufærandi þegar það heppnast jafnvel að sameina áhugamál og skemmtanir og tekist hefur hjá Bridgeklúbbnum BOB,“ segir í fréttatilkynningu klúbbsins en BOB er skammstöfun og stendur fyrir bridge og brauðtertur.
Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og stjórnlagaráðsfulltrúi, er félagi í klúbbnum en hún segir í samtali við DV.is að lítið sé um brauðtertur þegar klúbbmeðlimir hittast í dag og því sé klúbburinn í vandræðum með nafnið, sem fær þó að standa.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 



Auglýsing frá PETA gerir allt brjálað
Lést í sófabruni
Stúlkum víxlað á fæðingardeildinni
Svona bjó maðurinn í gaddfreðnum bílnum í tvo mánuði
„Hypjaðu þig af fjallinu mínu“