ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Sigmar plankar í Kastljóssetti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:47 › 11. júní 2011
Sigmar Guðmundsson sló á létta strengi í föstudagsþætti Kastljóssins.

Sigmar Guðmundsson sló á létta strengi í föstudagsþætti Kastljóssins. Mynd: Skjáskot af RUV.is

Plankaæðið virðist komið til að vera á Íslandi þar sem konur og karlar keppast nú við að láta mynda sig á sem frumlegastan máta í láréttri stöðu.

Íslenska plankasamfélaginu barst frægur liðsstyrkur í gærkvöldi þegar sjónvarpsstjarnan Sigmar Guðmundsson smellti sér upp á Kastljósborðið og lá þar stífur eins og fjöl á meðan hann lokaði umfjöllun þáttarins um plankaæðið og fór í auglýsingar.

Uppátækið hefur vakið mikla athygli. Íslenska plankasamfélagið birti skjáskot af uppstillingu Sigmars á Facebook-síðu sinni og virðist sjónvarpsmaðurinn fá fullt hús í einkunn fyrir tilburðina hjá fylgismönnum.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?