Sambíumaðurinn Edward Makuka Nkoloso birtist í blöðum og tímaritum víða um heim árið 1964 þegar hann lýsti því yfir að hann hefði stofnað Geimferðastofnun Sambíu. Hann ætlaði að senda eldflaugar til Mars en í hópi geimfaranna áttu meðal annars að vera trúboði og sérþjálfaðir kettir. Hlegið var að honum í vestrænum fjölmiðlum en margir telja nú að uppátæki hans hafi ekki verið annað en skemmtilegt grín sem hafi verið til þess gert að fylla Sambíumenn bjartsýni en á þessum árum öðlaðist Afríkuríkið sjálfstæði.
„Ég sé fyrir mér Sambíu framtíðarinnar sem Sambíu geimaldarinnar, sem verður lengra komin en Rússland og Bandaríkin. Reyndar er það svo að geimrannsóknarstofnunin mín hugsar nú þegar sex eða sjö ár lengra fram í tímann en þessi stórveldi.“
Þessi orð skrifaði Edward Makuka Nkoloso í blaðagrein í sambísku dagblaði árið 1964. Hann var á þessum tíma þekktur maður fyrir baráttu sína fyrir sjálfstæði landsins og kenndi náttúrufræðigreinar við grunnskóla í Lusaka, höfuðborg Afríkuríkisins Sambíu. Hann varð þó ekki landsfrægur fyrr en hann ákvað skyndilega að stofna geimrannsóknarstöð, þá fyrstu í landinu, og lýsti því yfir að hann ætlaði að senda tólf geimfara og tíu ketti með eldflaug til plánetunnar Mars!
Sniðugt grín
Yfirvöld í Sambíu lýstu aldrei yfir stuðningi við þessar metnaðarfullu áætlanir en Nkoloso sótti um sjö milljón dollara styrk frá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að fjármagna geimskotið. Þó að UNESCO hafi ekki viljað styrkja Nkoloso varð nafn hans frægt um alla Afríku og blaðamenn frá öllum heimshornum flykktust til Sambíu til að fylgjast með eldflaugatilraunum hans.
Það var á sínum tíma erfitt að meta hvort Nkoloso trúði því einlæglega að hann gæti hannað geimskip eða hvort athæfið væri grín sem ætti að hrifsa athyglina frá stjórnvöldum landsins. Flestir hrósuðu honum samt fyrir frábært og frumlegt skopskyn. Hann hefur á gamals aldri ekki viljað segja hvað hann hafði í raun í huga.
Vildi verða borgarstjóri
Edward Makuka Nkoloso stofnaði Geimrannsóknarstofnun Sambíu við upphaf sjöunda áratugarins. Hann hafði skömmu áður tapað í borgarstjórnarkosningunum í Lusaka. „Það er mjög óheppilegt fyrir Lusaka að ég skyldi ekki vera kosinn borgarstjóri. Ef ég hefði verið kosinn hefði höfuðborg Sambíu fljótlega breyst í nýja París, ef ekki New York,“ skrifaði Nkoloso í dagblað í Lusaka. Hann lýsti yfir því að í staðinn fyrir að einbeita sé að borgarmálunum myndi hann senda eldflaugar út í geim en yfirvöld vildu ekki leyfa honum að skjóta upp eldflaug hinn 24. október 1964 þegar Sambía lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum.

Nkoloso finnst gaman að rifja upp geimævintýrið frá 1964 þótt engir Sambíumenn hafi verið sendir til rauðu plánetunnar.
Trúboð á Mars
„Það er mikil synd. Það er allt til reiðu í leynilegum höfuðstöðvum okkar í dalverpi skammt frá Lusaka. Við hefðum getað skotið eldflauginni frá leikvanginum þar sem sjálfstæðishátíðin fór fram og Sambía hefði með því getað lagt undir sig Mars einungis nokkrum dögum eftir sjálfstæðisyfirlýsinguna. Já, það er áfangastaðurinn — Mars! Við höfum rannsakað Mars með stjörnukíkjum okkar í höfuðstöðvunum og höfum komist að því að á Mars búa vanþróaðar skepnur. Geimfararnir okkar eru tilbúnir. Sérþjálfuð geimstúlka, Mata Mwamba, tveir kettir (sérþjálfaðir) og trúboði munu ferðast með fyrstu eldflauginni. En ég hef beðið trúboðann um að þröngva ekki kristni upp á þá sem ekki vilja,“ skrifaði Edward í hinni stórskemmtilegu blaðagrein.
Hann birtist í kjölfarið á síðum heimsfrægra tímarita og dagblaða á borð við Time og New Statesman. „Ég reyni nú að venja þau við geimferðir með því að láta þau í geimhylkið mitt á hverjum degi. Það er 160 kílóa olíutunna, þau sitja í henni og ég rúlla þeim niður hól. Þá líður þeim líkt og geimförum sem þjótast um geiminn,“ skrifaði hann.
Frumlegt andóf
En UNESCO neitaði Nkoloso um þær sjö milljónir sem hann bað um, engar eldflaugar voru sendar út í geiminn og hingað til hefur Sambía ekki stundað geimferðir. Edward Mukuka Nkoloso féll í gleymskunnar dá.
Nokkrir sagnfræðingar hafa skilgreint geimævintýri Nkoloso sem frumlegt andóf gegn viðteknum hugmyndum vestrænna manna sem voru mjög fordómafullir í garð Afríkumanna þegar nýlendurnar urðu sjálfstæðar upp úr 1960. Í blaðagrein Time frá 1964 má lesa þá skoðun blaðamannsins, sem var algengt viðhorf í þá daga, að Afríkuríkin væru ekki „tilbúin“ til að verða sjálfstæð og heimskulegir draumar Nkoloso bæru vitni um það. En umræddir sagnfræðingar telja hins vegar að geimspaugið hafi einmitt verið til þess gert að skrumskæla fordómana með sköpunargleði að vopni.
Það ber að hrósa Nkoloso fyrir háleita drauma. „Sambíumenn eru ekki óæðri neinum mönnum í vísindum,“ skrifaði hann bjartsýnn. Orð Gandhi ríma vel við þessa sögu: „Vertu breytingin sem þú vilt sjá í veröldinni.“


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
