Hiti 15-25 stig í vikunni

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
08:38 › 8. ágúst 2012

Nú hefur veðrið breyst á landinu. Hann er lagstur í fremur stífa suðvestan átt og það dregur víða fyrir sólu en mér sýnist þó að suðausturlandið og síðan austanvert landið verði hvað sólríkast í dag en smám saman færir bjartviðrið sig yfir á Austur- og Norðausturlandið. Hlýtt verður í veðri og síðar í vikunni gætu hitatölur á Austurlandi slegið í 25 stig. Dálítil væta verður sunnan- og vestanlands alla vikuna. Magnið verður sýnu mest á Vestfjörðum. Síðdegis kunna að falla skúrir norðaustanlands.

Veðurhorfur einstaka daga.

Miðvikudagur

Suðvestan 8-15 m/s, stífastur á annesjum norðvestan og norðan til en hægastur með sunnan- og austanverðu landinu. Rigning með köflum sunnan og vestan til en þurrt og bjart veður norðaustan- og austanlands. Hiti 12-20 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi.

Fimmtudagur og föstudagur

Suðvestan 8-13 m/s, stífastur norðvestan til. Rigning eða súld með köflum sunnan og vestan til en þurrt að mestu og bjart með köflum norðaustan- og austanlands. Hiti 15-24 stig, hlýjast á Austurlandi.

Laugardagur

Fremur hæg suðvestlæg átt. Rigning sunnanlands, dálítil súld með köflum vestan til, einkum við sjóinn, annars bjart með köflum. Hiti 14-25 stig, hlýjast á Austurlandi.

Sunnudagur

Sunnan og suðaustan 3-10 m/s. Rigning með köflum sunnan og vestan til annars þurrt og bjart. Hiti 15-25 stig, hlýjast norðaustanlands.

Veðurspá gerð kl. 08:09, 8. ágúst

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.