Það eru sömu rólegheitin að sjá í þessu. Sennilega fer hann þó að blása nokkuð um miðja vikuna af suðvestri með vætu sunnan til og vestan, en vatnsmagnið verður að líkindum lítið. Það hlýnar, einkum norðan og austan til frá og með morgundeginum.
Veðurhorfur einstaka daga.
Mánudagur
Hæg suðlæg eða breytileg átt. Víðast hálfskýjað eða léttskýjað. Hiti 10-16 stig hlýjast til landsins.
Þriðjudagur
Suðvestan 5-10 m/s, stífastur norðvestan til. Bjart veður suðaustan- og austanlands annars yfirleitt skýjað með köflum og sumstaðar dálítil væta, einkum þó með ströndum suðvestan og vestan til. Hiti 13-19 stig á láglendi.
Miðvikudagur
Suðvestan 8-13 m/s, stífastur á annesjum norðvestan til en hægastur sunnan og austan til. Rigning með köflum sunnan og vestan til en þurrt og bjart veður norðaustan- og austanlands. Hiti 12-20 stig, hlýjast norðan- og austanlands.
Veðurspá gerð kl. 08:29, 6. ágúst
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Hemmi Gunn fallinn frá