Blíðskaparveðrið sem verið hefur í kortunum er þar ennþá. Breytingarnar eru einna helst þær, að smáskúrir geti fallið hér og þar. Reyndar verður skýjað að mestu við sjávarsíðuna vestan til og sumstaðar hætt við súldarlofti.
Veðurhorfur einstaka daga.
Laugardagur
Hæg breytilegt átt en norðan gola við austurströndina. Skýjað með köflum á vestanverðu landinu og sumstaðar hætt við dálítilli súld annars víða bjart veður. Hiti 10-20 stig, hlýjast á Suðurlandi en svalast norðaustan til.
Sunnudagur
Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum sunnan og vestan til og hætt við stöku skúrum annars léttskýjað. Hiti 12-18 stig, hlýjast fyrir norðan og austan.
Mánudagur
Hægviðri, og skýjað með köflum og hætt við stöku smáskúrum á víð og dreif. Hiti 10-16 stig.
Veðurspá gerð kl. 07:51, 4. ágúst
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013