Stöku skúrir og hægt kólnandi veður

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:11 › 22. ágúst 2012

Það nú svona heldur að sjá að skúrir verði ákveðnari í veðrinu en verið hefur og sumar sömuleiðis efnismeiri. Segja má að það geti fallið skúrir i flestum landshlutum en að oft birti á milli. Hins vegar er alltaf erfitt að segja nákvæmlega hvar þær ber niður. Eins og spárnar líta út hráar, þá virðist skúraveðrið ætla að vera hvað ákveðnast á Suðurlandi og norðaustanlands en oft hangir þetta í uppstreyminu við fjöllin en þurrt á sléttlendi. Þurrast verður á Vestur- og Norðvesturlandi. Hitinn er heldur að falla en engu að síður verða tveggja stafa tölur og vindur er víðast hvar hægur.

Veðurhorfur einstaka daga.

Miðvikudagur

Norðaustan 5-13 m/s stífastur suðaustan til og norðvestan til. Skúrir á víð og dreif og sumstaðar bjart á milli, en yfirleitt þurrt að kalla og bjart með köflum vestan og norðvestanlands. Kólnandi veður og hiti víðast 8-16 stig, svalast eystra en hlýjast vestanlands.

Fimmtudagur

Norðaustan 5-13 m/s stífastur norðvestan til. Rigning sunnan og austan til annars úrkomulítið og víða þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti 8-14 stig, hlýjast suðvestan og vestan til.

Föstudagur

Norðaustan 5-13 m/s stífastur norðvestan til. Rigning sunnan til annars yfirleitt þurrt að kalla og bjart með köflum. Hiti 7-12 stig, mildast suðvestan til.

Laugardagur og sunnudagur

Austan 8-13 m/s vestast á landinu en norvestlæg átt austan til. Rigning sunnan til, einkum í fyrstu. Dálítil væta norðaustanlands en þurrt og bjart á Vesturlandi. Hiti 6-12 stig.

Veðurspá gerð kl. 07:17, 22. ágúst

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.