Það er ekki að sjá annað en framhald verði á sæluveðri á landinu sunnan og vestanverðu. Þar verður bjart með köflum eða léttskýjað, hiti hár og vindur í lágmarki. Betra getur það vart orðið.
Það verður að mestu skýjað norðan og austanlands og hætt við vætu við austanvert landið.
Veðurhorfur einstaka daga.
Laugardagur
Norðaustan 10-15 m/s við suðausturströndina annars 5-13 m/s hvassast á Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Dálítil væta austan til og á norðanverðum Vestfjörðum annars þurrt að mestu og yfirleitt hálfskýjað eða léttskýjað á landinu sunnan og vestanverðu. Hiti 12-21 stig, hlýjast sunnan til og vestan
Sunnudagur
Austan 5-13 m/s en allhvöss norðaustan átt við suðurströndina. Dálítil væta austan- og suðaustanlands annars þurrt að kalla og bjart með köflum norðanlands og vestan. Hiti 10-18 stig hlýjast til landsins á vesturhelmingi þess.
Mánudagur
Norðaustan 5-13 m/s stífastur suðaustan til og á Vestfjörðum. Rigning sunnanlands og austan, lítilsháttar væta nyrðra en yfirleitt þurtt á Vesturlandi og skýjað með köflum. Hiti 12-16 stig hlýjast til landsins á Suður og Vesturlandi.
Veðurspá gerð kl. 08:33, 18. ágúst
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi