Hitinn í tæp 27 stig í Hallormsstað

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
08:18 › 11. ágúst 2012

Hitinn í gær fór í 26,6 stig í Hallormsstað og eins ótúlega og það hljómar yfir 25 stig mjög víða. Það er enn ótrúlegra en í fyrradag fór hitinn enn hærra mjög víða. Hér kemur topp sex listinn frá í gær:

26.6 °C Hallormsstaður

26.3 °C Eskifjörður

26.2 °C Kollaleira við Reyðarfjörð

26.2 °C Skjaldþingsstaðir við Vopnafjörð

25.7 °C Egilsstaðaflugvöllur

25.5 °C Seyðisfjörður

Topp sex listinn frá í fyrradag, fimmtudag:

28.0 °C Eskifjörður

27.9 °C Neskaupstaður

27.8 °C Fáskrúðsfjörður

27.6 °C Kollaleira við Reyðarfjörð

27.0 °C Seyðisfjörður

26.8 °C Bjarnarey

Þið sjáið á þessum tölum að þær eru með ólíkindum og með því hæsta sem gerist á Íslandi. Framhald ætlar að verða á þessum hlýindum.

Veðurhorfur einstaka daga.

Laugardagur

Sunnan 5-13 m/s, stífastur norðvestan til. Rigning með köflum sunnan og vestan til, skýjað og sumstaðar rigning með norðurströndinni, einkum síðdegis, annars þurrt og bjart austan til. Hiti 12-25 stig, hlýjast á Austurlandi.

Sunnudagur

Sunnan og suðaustan 5-13 m/s. Rigning með köflum sunnan og vestan til annars þurrt og bjart með köflum. Hiti 12-23 stig, hlýjast norðaustanlands.

Mánudagur

Austlæg átt, 3-10 inn á landinu en mun hvassara með ströndum syðra og nyrðra. Bjart norðanlands annars skýjað með köflum og sumstaðar lítilsháttar væta. Hiti 14-19 stig.

Þriðjudagur

Austlæg átt, 3-10 inn á landinu en mun hvassara með ströndum syðra og nyrðra. Rigning með köflum á suðurhelmingi landsins annars þurrt og víðast bjart veður. Hiti 14-23 stig, hlýjast norðan til og vestan.

Veðurspá gerð kl. 07:30, 10. ágúst

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.