Þær eru háar hitatölurnar þessa dagana. Í gær fór hitinn í 24,8 stig á Kirkjubæjarklaustri og 22,8 stig í Skaftafelli. Í dag röðuðu fimm veðurstöðvar sér við 19 stigin.
19.4 °C Hella sjálfvirk stöð
19.1 °C Þykkvibær
18.9 °C Sámsstaðir
18.9 °C Þingvellir
18.6 °C Eyrarbakki sjálfvirk stö
16,6 °C Reykjavík
Sé horft heilrænt yfir vikuna má segja að frá með hádeginu í dag verði ekta útileguveður á suðvestan- og vestanverðu landinu, einkum þó til landsins. Hitatölur verða háar eða 16-20 stig þegar hlýjast verður að deginum, vindur verður skaplega hægur til landsins en öllu stífari með ströndum. Ég á von á frekar sólríku veðri þar.
Mánudagur
Norðaustan 5-10 m/s en 8-13 m/s við Breiðafjörð. Léttskýjað sunnan, vestan og norðvestan til. Fer að rigna suðaustanlands um hádegi en úrkomulítið norðaustan og austan til og yfirleitt skýjað. Hiti 8-19 stig hlýjast suðvestanlands en svalast við austur- og norðausturströndina.
Þriðjudagur
Norðan 5-10 m/s en 8-13 m/s við austurströndina. Skýjað og hætt við lítilsháttar vætu allra norðaustast og austan til annars yfirleitt léttskýjað. Hiti 8-16 stig, hlýjast suðvestanlands en svalast við austur- og norðausturströndina.
Miðvikudagur
Hæg breytileg átt og léttskýjað um mest allt land, Hiti 12-20 stig, hlýjast á Vesturlandi.
Fimmtudagur
Hæg norðlæg eða breytileg átt. og yfirleitt léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast til landsins, sýnu hlýjast á vestanverðu landinu..
Föstudagur
Stíf vestan átt með norðurströnd landsins, annars yfirleitt fremur hæg norðvestlæg átt og yfirleitt léttskýjað um mest allt land. Áfram hlýtt í veðri.
Veðurspá gerð kl. 18:23, 9. júlí.
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum