Í dag sunnudag verður bjart veður með köflum sunnan til og léttskýjað á suðausturlandi. en þykknar upp nyrðra og þar fáum við alvöru rigningu, fyrst á Vestfjörðum og það nú um hádegi. Allt bendir til að rigningin nái yfir á sunnanvert landið í nótt.
Veðurhorfur einstaka daga:
Sunnudagur
Hæg suðvestan átt. Snýst smám saman til fremur hægrar norðaustlægrar áttar með rigningu, fyrst á Vestfjörðum. Víða rigning norðanlands síðdegis og víða um land í nótt. Þurrt sunnanlands og bjart með köflum lengst af, sýnu bjartast suðaustanlands. Hiti 10-23 stig, hlýjast á Kirkjubæjarklaustri.
Veðurspá gerð kl. 08:00, 8. júlí. Næsta veðurspá kl. 9:00
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013