Í dag eigum við von á blíðaskaparveðri á norðanverðu landinu. Hita nálægt 18-20 stigum og léttskýjuðu veðri. Vestanlands er úti ævintýri um sinn, þar verður skýjað og dálítil rigning með köflum.
Veðurhorfur einstaka daga.
Mánudagur
Austan og suðaustan átt, 3-8 m/s en hvassari með kvöldinu. Rigning á vestanverðu landinu, skýjað austan til en yfirleitt léttskýjað norðan og norðaustan til. Hiti 10-18 stig, hlýjast norðan til.
Þriðjudagur
Austlæg átt, yfirleitt 3-10 m/s, stífastur með ströndum. Skýjað norðan og austan til en bjart með köflum syðra og á landinu vestanverðu. Hiti 10-18 stig, hlýjast vestan til.
Miðvikudagur
Hæg norðaustlæg átt. Skýjað norðan og austan til annars víða bjart veður. Hiti 10-18 stig, hlýjast vestan til.
Veðurspá gerð kl. 11:30, 30. júlí.
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013