Þá eru lætin búin frá þessari lægð sem olli snöpum vindi og vindhviðum í gærkvöld. Reyndar er ennþá hvasst úti við norðurströndina og nyrst á Vestfjörðum.
Í dag tekur við mun skaplegra veður hvað vinda varðar en ég á von á að það verði rigning eða skúrir í flestum landshlutum og milt.
Sunnudagur
Austan og suðaustan 5-13 m/s en heldur vaxandi norðaustan átt á Vestfjörðum, 10-15 m/s hvassast á annesjum. Rigning eða skúrir. Hiti 14-18 stig að deginum.
Mánudagur
Norðaustan 10-18 á Vestfjörðum og vestan til á landinu annars 5-10 m/s. Rigning en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 12-20 stig, hlýjast syðst á landinu.
Þriðjudagur
Norðan átt, 5-13 m/s, hvassast við austurströndina. Lítilsháttar væta norðaustanlands og suðaustan til annars úrkomulítið og skýjað með köflum. Hiti 8-15 stig, hlýjast syðst, svalast við norðurströndina.
Veðurspá gerð kl. 07:04 22. júlí 2012
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi