Þær eru nokkuð einkennandi fyrir kortin, skúrirnar. Má raunar búast við þeim næstu daga í flestum landshlutum og jafnvel svo að gert geti myndarlegar dembur. Að öðru leyti verðum við í hæglætisveðri og ágætum hlýindum.
Miðvikudagur
Hæg breytileg átt. Rigning eða skúrir en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Hiti 12-18 stig hlýjast til landins.
Fimmtudagur
Austan 8-13 m/s með norðurströnd landsins annars hæg breytileg átt. Skýjað og víða skúrir. Hiti 12-18 stig hlýjast vestanlands.
Föstudagur
Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað og skúrir í flestum landshlutum. Áfram milt í veðri.
Veðurspá gerð kl. 07:20 18. júlí 2012
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Hemmi Gunn fallinn frá