Víðast bjartviðri í dag

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
06:05 › 16. júlí 2012

Sé horft yfir vikuna má segja að eftir því sem líður á vikuna aukist líkur á skúraveðri í flestum landshlutum, sérstaklega þó norðan til á landinu. Ekki er um nein alvöru úrkomukerfi að ræða en engu að síður bleyta.

Dagurinn í dag verður þó bjartur en með kvöldinu á ég von á að það geti dregið fyrir sólu vestan til á landinu og að á morgun byrji þetta skúraveður sem nær hámarki á miðvikudag með skúrum um mest allt land. Enginn kuldi er í kortunum en hlýjast er þó áberandi suðvestan til, heilt yfir séð.

Mánudagur

Norðaustan átt, 5-10 m/s norðvestan til og við Breiðafjörð annars 3-8 m/s. skýjað með köflum eystra annars víðast léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast vestanlands.

Þriðjudagur

Hæg breytileg átt. Bjart með köflum og hætt við stöku skúrum á víð og dreif. Hiti 12-18 stig, hlýjast til landsins.

Miðvikudagur

Stíf norðaustan átt á annesjum á Vestfjörðum annars hæg breytileg átt. Skúrir í flestum landshlutum. Milt í veðri.

Fimmtudagur

Norðaustan 5-13 m/s. Skýjað eystra og skúrir en úrkomulítið vestanlands. Hiti 12-17 stig.

Veðurspá gerð kl. 06:00 16. júlí 2012

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.