Köflótt en hlýtt / Sjáið myndirnar í ljósmyndasamkeppninni

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:42 › 14. júlí 2012

Fari sem horfi verður skýjafarið á landinu fremur köflótt í dag. Það mun þó létta heldur til þegar líður á daginn, einkum sunnan til á landinu. Hlýtt verður í veðri. Á morgun er von á rigningu við austurströndina annars verður áfram þessi þurrkur þó skýjafarið verði köflótt. Svo eru horfur á brakandi sólskini og blíðu eftir helgina og það um mest allt land.

Laugardagur

Norðvestan 5-10 m/s. Skýjað með köflum í fyrstu en léttir svo heldur til. Hiti 12-18 stig, hlýjast til landsins sunnan og vestan til.

Sunnudagur

Norðvestan 8-13 m/s við austurströndina annars norðaustan 5-10 m/s. Rigning austan til þegar líður á daginn, annars víðast skýjað með köflum. Hiti 12-22 stig, hlýjast suðvestanlands.

Mánudagur

Norðaustan átt, 5-10 m/s norðvestan til og við Breiðafjörð annars 3-8 m/s. Rigning austan til, skýjað með köflum nyrðra annars léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast suðvestanlands.

Veðurspá gerð kl. 07:45 14/7 2012

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.