Hitinn komst í 22,2 stig í gær í Húsafelli - áfram brakandi þurrkur og hlýtt

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
06:45 › 13. júlí 2012

Hitinn fór í 22,2 stig í Húsafelli í gær og tæpar 22 gráður í Árnesi í Gnúpverjahreppi. Engin úrkoma var á landinu í gær.

Það er ekki annað að sjá en að áfram verði sólríkt á landinu í dag. Vindur verður reyndar nokkur með norðaustanverðu landinu, hvassast við ströndina annars hægur. Það er viss möguleiki á einhverri úrkomu austanlands á sunnudag en spám ber alls ekki saman um hvernig það muni þróast. Helgarhorfurnar eru almennt góðar, hægur vindur og milt.

Föstudagur

Vestan og norðvestan 8-15 m/s um norðaustanvert landið annars yfirleitt fremur hæg norðvestlæg átt og léttskýjað um mest allt land en sumstaðar þokuloft við sjóinn norðan til. Hiti 12-22 stig, hlýjast á suðausturlandi.

Laugardagur

Norðvestan 5-10 m/s. Víðast hálfskýjað eða léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast til landsins sunnan og vestan til.

Sunnudagur

Norðan 8-13 m/s við austurströndina annars norðaustan 5-10 m/s. Rigning austan til, skýjað með köflum nyrðra annars léttskýjað. Hiti 12-22 stig, hlýjast suðvestanlands.

Mánudagur

Norðaustan átt, 8-13 m/s norðvestan til og við Breiðafjörð annars 3-8 m/s. Rigning austan til, skýjað með köflum nyrðra annars léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast suðvestanlands.

Veðurspá gerð kl. 06:45 13/7 2012

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.