Brakandi blíða / Sjáið myndirnar í myndasamkeppninni

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
10:59 › 11. júlí 2012

Það er ekki annað að sjá en að það verði sólríkt á landinu í dag. Vindur verður yfirleitt hægur og áberandi hlýjast verður á vestanverðu landinu, og þá til landsins.

Miðvikudagur

Hæg breytileg átt og léttskýjað um mest allt land en hætt við þokulofti við sjóinn norðvestan til og á Vestfjörðum. Hiti 12-20 stig, hlýjast á Vestur og norðvesturlandi.

Fimmtudagur

Hæg norðlæg eða breytileg átt. og yfirleitt léttskýjað. Hiti 12-20 stig, hlýjast til landsins.

Föstudagur

Stíf vestan og norðvestan átt, 10-15 m/s með norðurausturströnd landsins, annars yfirleitt fremur hæg norðvestlæg átt og yfirleitt léttskýjað um mest allt land en sumstaðar skýjað með köflum við sjóinn. Hlýtt í veðri.

Laugardagur

Norðvestan 5-10 m/s. Skýjað með köflum norðaustan og austan til annars léttskýjað. Hiti 12-19 stig, hlýjast sunnan og vestan til.

Sunnudagur

Norðan 10-15 m/s við austurströndina annars norðaustan 5-10 m/s. Skýjað austan til annars léttskýjað. Hiti 12-22 stig, hlýjast suðvestanlands.

Veðurspá gerð kl. 11:00 11/7 2012

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.