Það styttist í helgina og sæmileg mynd að koma á spárnar. Það horfir bara ágætlega, sér í lagi á vesturhelmingi landsins, bjart veður og hlýtt en vindasamt með ströndum norðvestan til og syðst. ´
Það má búast við einhverri vætu í dag í höfuðborginni og sunnan til en nyrðra, sér í lagi norðaustan og austan til, verður þurrt en hætt við þokulofti.
Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.
Fimmtudagur
Hvöss norðaustan og austan átt með ströndum sunnan og suðaustan til. Strekkingur norðvestan til og með norðurströndinni annars hægari. Rigning með köflum en úrkomulítið á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 8-15 stig, hlýjast norðvestan og vestan til.
Föstudagur
Allhvöss norðaustan og austan átt með ströndum sunnan og suðaustan til. Strekkingur norðvestan til og með norðurströndinni annars hægari. Bjart með köflum vestanlands en skýjaðra á landinu austanverðu en yfirleitt þurrt. Hiti 10-17 stig hlýjast til landsins sunnan og vestan til.
Laugardagur
Stíf austan átt með ströndum sunnan til og norðan annars mun hægari. Yfirleitt léttskýjað á vesturhelmingi landsins en bjart með köflum á þeim eystri. Hiti 4-16 stig hlýjast sunnan og vestan til.
Sunnudagur
Norðaustan strekkingur norðvestan til og við suðausturströndina annars hægur. Bjart með köflum og þurrt að kalla. Hiti 6-15 stig, svalast eystra en hlýjast norðvestan og vestan til.
Veðurspá gerð kl. 16:23, 7. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum