Jæja það hlaut að koma að því að við tæki breytt veðurlag. Reyndar verður dagurinn í dag ekki ósvipaður þeim á undan en á morgun þá verður komið mun svalara loft yfir landið og það mun frysta til landsins á Norðaustur- og Austurlandi að næturlagi og sumstaðar snjóa. Það liggur úrkomuloft, reyndar ekki mjög burðugt, yfir áusturhluta landins þannig að einhver væta verður norðan og austanlands og þar sem kaldast verður til landsins verður þetta slydda eða snjókoma. Það má búast við allþéttri rigningu sunnanlands á morgun alveg austur undir Klaustur. Það verður að mestu skýjað á morgun.
Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.
Mánudagur
Norðaustan 5-13 m/s á norðvesturfjórðungi landsins, annars hæg austlæg átt. Hætt við lítilsháttar vætu suðaustan til og skýjað með köflum annars úrkomulítið og bjart veður. Hiti 5-12 stig austanlands annars 12-18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.
Þriðjudagur og miðvikudagur
Norðaustan 8-15 m/s með vestanverðu landinu og við norður- og austurströndina annars hægari. Rigning með köflum en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti 6-13 stig, hlýjast vestanlands. Næturfrost á hálendinu og til landsins norðan og austan til.
Fimmtudagur
Norðaustan strekkingur eða allhvass en mun hægari suðvestanlands. Rigning en úrkomulítið sunnan og vestan til. Hiti 8-13 stig.
Veðurspá gerð kl. 07:45, 4. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi