Síðasti sólardagurinn í bili á morgun

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
06:43 › 3. júní 2012

Nú er að koma mynd á þær breytingar sem eru að verða í vikunni á veðrinu. Hæðarhryggurinn sem hefur varist fimlega aðkomu lægða er að gefa eftir og lægðirnar að ná til lands. Þær eru nú í sjálfu sér ekki burðugar, en nóg til þess að nú verður lát á þessu sólríka veðri sem verið hefur og auk þess litið eitt svalara. Það er ekki svo mikil rigning í þessum kerfum en þó má búast við að vætan verði einna ákveðnust norðaustan og austanlands.

Dagurinn í dag og megnið af landinu á morgun verður í þeirri blíðu sem verið hefur.

Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.

Sunnudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land en hætt við þokulofti við sjávarsíðuna. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Mánudagur

Norðaustan 5-13 m/s á norðvesturfjórðungi landsins, annars hæg austlæg átt. Hætt við lítilsháttar vætu suðaustan og austan til og skýjað með köflum annars úrkomulítið og bjart veður. Hiti 5-12 stig austanlands annars 12-18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Þriðjudagur og miðvikudagur

Norðaustan 8-15 m/s með vestanverðu landinu og við norður- og austurströndina annars hægari. Rigning með köflum en úrkomulítið suðvestanlands Hiti 6-12 stig, hlýjast vestanlands. Næturfrost á hálendinu.

Fimmtudagur

Norðaustan strekkingur eða allhvass en mun hægari suðvestanlands. Rigning suðaustan til annars úrkomulítið. Hiti 8-13 stig.

Veðurspá gerð kl. 15:05, 3. júní,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.