Svipað til sunnudags / Munið ljósmyndirnar

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:14 › 27. júní 2012

Veðurhorfur dagsins og inn í helgina eru keimlíkar því sem verið hafa. Hlýjast verður á suðvesturfjórðungi landsins og víða hætt við síðdegisskúrum. Á sunnudagskvöld gengur myndarleg lægð til austurs fyrir sunnan land, gangi spár eftir og eins og staðan er nú nær úrkomuloft frá henni inná sunnan og vestanvert landið.

Veðurhorfur einstaka daga:

Miðvikudagur

Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og víða hætt við síðdegisskúrum. Hiti 12-18 stig, hlýjast í uppsveitum á Vesturlandi.

Fimmtudagur

Heldur vaxandi norðaustan átt, 5-10 m/s m/s norðvestan til og úti við norðurströndina. Bjart veður norðvestan til og Vesturlandi annars skýjað með köflum og víða síðdegisskúrir sunnan til og á austurhelmingi landsins. Hiti 10-18 stig, hlýjast vestanlands.

Föstudagur

Norðan strekkingur með austurströndinni annars hægari. Skýjað með köflum og víða síðdegisskúrir. Hiti 8-17 stig hlýjast suðvestanlands.

Laugardagur

Norðan og norðaustan strekkingur með austurströnd landsins og við Breiðafjörð annars hægari. Bjartviðri um mest allt land, síst þó norðvestan til og við austurströndina. Hiti 8-17 stig hlýjast suðvestanlands.

Sunnudagur

Suðaustan 8-15 sunnan og vestan til, hvassastur á annesjum. Annars hægari austlæg átt. Rigning með köflum suðaustan til annars þurrt og skýjað með köflum. Fer að rígna með kvöldinu sunnan og vestanlands. Hiti 8-14 stig, svalast við austurströndina.

Veðurspá gerð kl. 07:30, 27. júní,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.