Hitinn fór í 22 stig nokkuð víða í gær / Munið ljósmyndirnar

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:14 › 24. júní 2012

Þetta er og verður allt á svipuðum nótum og verið hefur. Hægviðrið heldur áfram næstu daga. Það verður bjart með köflum og hlýtt í veðri.

Svona litu hámarkshitatölurnar út í gær:

22.0 °C Reykir í Fnjóskadal

21.7 °C Húsafell

21.6 °C Þingvellir

21.3 °C Veiðivatnahraun

21.2 °C Ásgarður í Dölum

20.9 °C Haugur í Miðfirði

20.9 °C Mývatn

Veðurhorfur einstaka daga:

Sunnudagur

Hæg norðlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum sunnan og austan til annars yfirleitt hálfskýjað eða skýjað og hætt við síðdegisskúrum hér og hvar. Hiti 12-20 stig hlýjast í uppsveitum á Suðurlandi.

Mánudagur

Hæg breytileg átt. Víða bjart veður einkum þegar líður á daginn en sumstaðar skýjað sunnan og austan til. Hiti 12-18 stig, hlýjast á Suður og Vesturlandi.

Þriðjudagur

Hæg breytileg átt. Hálfskýjað eða léttskýjað en víða hætt við síðdegisskúrum til landsins. Hiti 12-18 stig.

Miðvikudagur

Hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 12-18 stig, hlýjast í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi.

Veðurspá gerð kl. 07:20, 24. júní,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.