Spárnar sýna litlar breytingar frá því sem verið hefur. Reyndar er hlýnandi veður í kortunum og í dag og um helgina á ég vona á mjög góðum hita vítt og breitt um landið eða 15-20 stigum og mér sýnist að hlýjast verði í dag austur á Fljótsdalshéraði og þar má búast við að verði jafnframt léttskýjað. Vindur er í algjöru lágmarki og því gæti hafgola gert sig gildandi með ströndum og þar verður því nokkuð svalara en til landsins. Í höfuðborginni verður skýjað með köflum og hlýtt. Líkur á vætu í dag og um helgina eru í lágmarki.
Föstudagur
Hægviðri eða hafgola. Hálfskýjað eða léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-20 stig, hlýjast á Austurlandi.
Laugardagur
Hæg norðlæg átt. Skýjað norðvestan til annars yfirleitt léttskýjað lengst af degi. Hiti víðast 14-20 stig hlýjast í uppsveitum á Suðurlandi.
Sunnudagur
Hæg norðlæg átt. Skýjað með köflum og hætt við síðdegisskúrum hér og hvar. Hiti 10-16 stig hlýjast á Suðurlandi.
Mánudagur
Hæg breytileg átt. Bjart með köflum og hætt við síðdegisskúrum. Hiti 10-17 stig, hlýjast á suðausturlandi.
Veðurspá gerð kl. 07:40, 22. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi