Það bendir allt til þess að vikan sem framundan sé verði hægviðrasöm, líkt og sú síðasta og að bjart verði með köflum og stöku skúrir einstaka daga. Á morgun er hins vegar horfur á úrkomulitlu eða úrkomulausu veðri og það verði ýmist hálfskýjað eða léttskýjað. Hitinn verður ágætur í vikunni eða á bilinu 8-13 stig.
Sunnudagur - 17 júní
Yfirleitt hæg norðaustlæg eða austlæg átt. Úrkomulítið og víða bjart með köflum, einkum norðvestan og norðan til. Hiti 7-13 stig,
Mánudagur
Hæg breytileg átt. Víðast hálfskýjað eða léttskýjað en hætt við síðdegisskúrum norðvestanlands. Hiti 8-13 stig hlýjast í uppsveitum sunnan til.
Þriðjudagur
Hægviðri og bjart með köflum. Hiti 7-12 stig, mildast sunnan og vestan til.
Veðurspá gerð kl. 17:00, 17. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi