Ég er farinn að heyra kvein frá bændum sem vilja fara að fá alvöru rigningu áður en grasrótin tekur að brenna í góðviðrinu. Sem betur fer hefur á stöku stað fallið skúrir en það er ekki að sjá neina alvöru rigningu í bráð. Þetta er nokkuð í takt við það sem veðurlagsspár gerður ráð fyrir nú í júní en ég minni á að hann er ekki hálfnaður, en lofar vissulega góðu fyrir hinn dæmigerða ferðamann.
Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.
Miðvikudagur
Hægviðri eða hafgola. Hálfskýjað eða léttskýjað en sumstaðar skýjað suðaustanlands og hætt við stöku skúrum. Hiti 6-16 stig, hlýjast til landsins á Suður- og Vesturlandi en svalast við norðausturhornið.
Fimmtudagur
Hæg norðlæg átt. Þykknar upp norðanlands en bjart veður syðra en víða síðdegiskúrir. Hiti 6-14 stig hlýjast til landsins sunnan- og vestanlands .
Föstudagur
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað norðaustan- og austanlands annars yfirleitt hálfskýjað eða léttskýjað og hætt við síðdegisskúrum. Hiti 6-16 stig, hlýjast í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi.
Helgarhorfur
Hægviðrasamt á laugardag og úrkomulítið og milt. Norðlæg átt á sunnudag með vætu austan til á landinu annars nokkuð bjart.
Veðurspá gerð kl. 07:03, 13. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi