Vikan sem framundan er verður einstaklega róleg hvað vinda varðar. Sólfarið verður köflótt og helst að vænta einhverra vætu sunnan til framan af vikunni en síðan gætu skúraský gert sig gildandi vítt og breytt í logninu. Það gæti þó orðið vel bjart á milli skúraskýjanna.
Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.
Sunnudagur
Norðaustan strekkingur norðvestan til og við suðausturströndina annars hægur. Víða bjartviðri . Hiti 6-15 stig, svalast eá norðan- og vestanverðu landinu, sér í lagi til landsins annars hálfskýjað eða skýjað, einkum við ströndina og sumstaðar lítilsháttar væta. Hiti 5-16 stig svalast á Austurlandi en hlýjast norðvestan til.
Mánudagur
Hæg breytileg átt. Skýjað sunnan og austan til og hætt við lítilsháttar vætu annars yfirleitt nokkuð bjart veður, einkum til landsins. Hiti 5-14 stig, svalast eystra en hlýjast vestan til.
Þriðjudagur
Hæg breytileg átt. Skýjað sunnan og austan til og hætt við lítilsháttar vætu annars yfirleitt nokkuð bjart veður, einkum til landsins. Hiti 4-12 stig. svalast eystra, mildast sunnan og vestan til.
Miðvikudagur
Hægviðri og skýjað með köflum víðast hvar og hætt við lítilsháttar vætu við strendur landsins. Hiti 5-12 stig, svalast eystra, mildast sunnan og vestan til.
Fimmtudagur
Hægviðri eða hafgola. Smá skúrir á víð og dreif og nokkuð bjart á milli. Hiti 7-12 stig.
Föstudagur
Sunnan eða suðvestan 5-10 norðvestan til annars hæg breytileg átt. Þykknar smám saman upp norðvestan og vestan til. Hiti breytist lítið.
Veðurspá gerð kl. 09:03, 10. júní,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Hemmi Gunn fallinn frá