Ævintýralegt veður sunnan og vestanlands um helgina

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:48 › 1. júní 2012

Nú liggur ágætlega fyrir að það eru breytingar framundan í veðrinu. Það verður björt og hlý helgi, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi og sjómannadagurinn fer því fram í blíðskaparveðri. Á mánudag fer smám saman að draga fyrir sólu með lítilsháttar vætu, sér í lagi eystra. Á þriðjudag verður svo orðið skýjað að mestu og veður fer kólnandi.

Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.

Laugardagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land, síst allra norðaustast. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Sunnudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Mánudagur

Norðaustan 8-15 m/s á norðvesturfjórðungi landsins, annars hæg austlæg átt. Hætt við lítilsháttar vætu sunnan og austan til og á Ströndum og skýjað með köflum annars úrkomulítið og bjart veður. Hiti 3-6 stig austanlands annars 12-16 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Þriðjudagur

Norðaustan 8-15 m/s á norðvesturfjórðungi landsins, norðan 8-15 m/s á Austurlandi annars hægari. Rigning austanlands, skúrir syðra annars úrkomulítið og yfirleitt skýjað. Hiti 3-12 stig, hlýjast vestanlands.

Veðurspá gerð kl. 08:55, 2. júní,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.