Breytingar á veðri eftir helgi - Þingvellir með 21 stig í gær

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:19 › 31. maí 2012

Enn mun sólin brosa sínu breiðasta og verður svo fram yfir helgi um nær allt land. Hins vegar eru í þróun breytingar austanlands á mánudag og um allt land á þriðjudag. Þær breytingar munu hafa einhverja vætu í för með sér þó enn sé ekki að sjá að hún verði mikil.

Svona fóru leikar í gær, þegar lesið var af hámarksmælum. Reykjavík fær að fljóta með:

20.7 °C Þingvellir

20.2 °C Húsafell

19.5 °C Hjarðarland sjálfvirk st

19.4 °C Ásgarður sjálfvirk stöð

18.8 °C Bláfeldur sjálfvirk stöð

18.5 °C Ásgarður

12,9 °C Reykjavík

Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.

Fimmtudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 2-8 stig austanlands, annars 10-20 stig hlýjast á Vesturlandi.

Föstudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 10-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Laugardagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Sunnudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Veðurspá gerð kl. 07:30, 31. maí,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.