Hitinn fór í 22 stig í Borgarfirði í gær - Vesturlandið hlýjast

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:30 › 30. maí 2012

Ekkert lát virðist ætla að vera á sólskininu á landinu. Mestu hlýindin eru nú meira vestan megin á landinu og í gær fór hitinn í 22 stig í Borgarfirði, þ.e. á veðurathugunarstöðinni í Stafholtsey. Rétt er að minna á að þegar hiti verður mjög hár yfir landi, er hætt við hafgolu við sjóinn og jafnvel þokulofti og þá verður þar mun svalara.

Svona fóru leikar í gær, þegar lesið var af hámarksmælum. Reykjavík fær að fljóta með:

21.6 °C Stafholtsey

20.5 °C Hvanneyri

20.3 °C Fíflholt á Mýrum

20.1 °C Húsafell

19.3 °C Hafnarmelar

19.1 °C Bláfeldur

14,5 °C Reykjavík

Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.

Miðvikudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land en hætt við þokulofti við ströndina vestanlands. Hiti 10-20 stig, hlýjast til landsins á vesturlandi.

Fimmtudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 2-8 stig austanlands, annars 10-20 stig hlýjast á Vesturlandi.

Föstudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 10-22 stig hlýjast á Vesturlandi.

Laugardagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-22 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Sunnudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-23 stig hlýjast á Suðurlandi.

Veðurspá gerð kl. 07:40, 30. maí,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.