Ekkert lát virðist ætla að vera á sólskininu á landinu. Mestu hlýindin verða nú meira vestan megin á landinu í dag og næstu daga og kann að slá í 22-23 gráður og þá líklega á svæðinu frá Borgarfirði og norður í Skagafjörð. Þegar hitinn reiknast svona hár er hætt við hafgolu við sjóinn og jafnvel þokulofti og þá verður þar mun svalara. Þannig að þessar hitatölur sem ég er að nefna eiga ekki við sjávarsíðuna.
Hitinn í gær fór hæst í 21 stig á Torfum í Eyjafjarðarsveit en spár eru sýna hærri hita í dag og næstu daga og þá meira vestan til á landinu!!
Svona lítur veðurspáin út einstaka daga.
Þriðjudagur
Hæg austlæg átt, en þó strekkingur norðvestan til og úti við suður- og norðurströnd landsins. Léttskýjað um mest allt land, en hætt við þokulofti við sjóinn,. Hiti 12-22 stig, hlýjast til landsins norðvestan og vestan til.
Miðvikudagur
Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land en hætt við þokulofti við norðvesturströndina. Hiti 10-20 stig, hlýjast til landsins á vestur og norðvesturlandi.
Fimmtudagur
Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 10-20 stig hlýjast á Vesturlandi.
Föstudagur
Hægviðri eða hafgola og slær fyrir norðanátt austast á landinu. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 10-23 stig hlýjast á Suðurlandi.
Laugardagur
Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-23 stig hlýjast á Vesturlandi.
Sunnudagur
Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-23 stig hlýjast á Suður- og Vesturlandi.
Veðurspá gerð kl. 06:40, 29. maí,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013