Hitinn fór í 22 stig á Reyðarfirði í gær - hlýindin á leið suður

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
07:08 › 27. maí 2012

Jæja, þá er vindurinn gengin niður viðast hvar og framundan sólríkur dagur og hlýr. Ekki er að sjá annað en landsmenn muni njóta veðurblíðu næstu daga og heldur hlýnar næstu daga á vestanverðu landinu og kann að fara í ein 22 stig í Borgarfirði, Húnavatnssýslunum í skjóli fjalla og víðar.

Veðurspá einstaka daga.

Sunnudagur

Norðvestan strekkingur við austurströndina annars hæg breytileg átt. Bjartviðri um mest allt land uppúr hádegi. Hiti 12-18 stig, hlýjast sunnan og suðaustanlands.

Mánudagur

Hæg breytileg átt. Léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-20 stig, hlýjast til landsins.

Þriðjudagur

Hæg austlæg átt, en þó strekkingur norðvestan til. Léttskýjað um mest allt land, síst þó við ströndina eystra. Hiti 12-22 stig, hlýjast norðvestan og vestan til.

Miðvikudagur

Hægviðri eða hafgola. Léttskýjað um mest allt land. Áfram hlýtt í veðri.

Veðurspá gerð kl. 07:90, 27. maí,

Sigurður stormur veðurfræðingur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.