Norðlendingar og síðan þeir eystra hafa heppnina með sér þessa hvítasunnuhelgi, sem oft er talin fyrsta ferðahelgi ársins. Spár eru nokkuð stöðugar og því full ástæða til að ætla að þessar spár munu standa í öllum meginatriðum og besta veðrið verði norðaustan og austanlands. Vætan verður fyrst og fremst á Vestfjörðum og allra vestast en annars úrkomulítið. Það er frekar vindurinn sem skyggir á ferðaveðrið vestanlands.
Veðurspá einstaka daga.
Fimmtudagur
Suðvestan 8-13 m/s en hvassara í strengjum við fjöll. Rigning á víð og dreif, en yfirleitt þurrt norðaustan til og bjart með köflum en yfirleitt léttskýjað þegar líður á daginn. Hiti 12-20 stig.
Föstudagur
Sunnan strekkingur vestanlands, 8-15 m/s en hvassara á stöku stað norðvestan til. Hægari á austurhelmingi landsins. Rigning á Vestfjörðum, annars hætt við lítilsháttar vætu með köflum sunnan og vestan til. Hálfskýjað eða léttskýjað norðaustan og austanlands. Hiti 12-22 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Laugardagur
Sunnan og suðvestan strekkingur á vesturhelmingi landsins annars hægari. Rigning á Vestfjörðum og Snæfellsnesi annars úrkomuminna sunnan og vestan til. Bjart veður norðan og austan til en hætt við þokubökkum við ströndina. Hiti 13-24 stig, hlýjast norðaustanlands.
Sunnudagur
Fremur hæg vestlæg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og hætt þokusúld norðanlands en léttir til síðdegis. Yfirleitt léttskýjað eystra en hætt við þokubökkum við ströndina. Hiti 12-20 stig.
Mánudagur
Hæg suðvestlæg og vestlæg átt. Skýjað með köflum vestanlands, annars léttskýjað um mest allt land. Hiti 12-17 stig.
Veðurspá gerð kl. 15:30 24. maí,
Sigurður stormur veðurfræðingur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013