ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Von á hvassviðri seinnipartinn

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
01:09 › 7. febrúar 2012
Það er von á hvassviðri og úrkomu í dag

Það er von á hvassviðri og úrkomu í dag

Dagurinn í dag verður vindasamur eða 15-20 m/s sunnan og austan til og úrkoma um mest allt land.
Lægðir verða í essinu sínu með breytilegu veðri. Það verða ágæt hlýindi á milli en hina kaldari daga sem koma á milli, verður þó hiti yfirleitt sæmilega yfir frostmarki sunnan- og vestanlands.

Veðurspá einstaka daga

Þriðjudagur

Víðast sunnan og suðvestan verða 5-13 m/s en 15-20 m/s með ströndum sunnan og austan til. Rigning eða skúrir um mest allt land þegar líður á daginn. Hiti 4-10 stig en við frostmark á hálendinu.

Miðvikudagur

Sunnan 5-10 m/s. Rigning eða skurir með ströndum sunnan til og vestan en sumstaðar slydda til landsins en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 2-6 stig sunnan og vestan lands annars frost 0-6 stig mildast við sjóinn.

Horfur á fimmtudag og föstudag

Ákveðnar suðlægar áttir með vætu sunnan og vestan til en úrkomulítið norðan og austan til. Frostlaust sunnan og vestan til. Á föstudeginum verður hvassara og hlýrra.

Veðurspá gerð kl. 06:00, 7. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?