Stormar munu geysa með fráviðrishviðum viðfjöll og háhýsi. Enn á eftir að hvessa í höfuðborginni og þar verður hvassast um kl. 18
Viðvörun: Búist er við stormi norðvestan til, á Vestfjörðum og við Faxaflóa fram eftir morgni
Veðurspá einstaka daga
Þriðjudagur
Suðvestan hvassviðri eða stormur norðvestan til, á Vestfjörðum og við Breiðafjörð annars hægari. Rigning en úrkomulítið á Norður og Austurlandi. Hiti 0-8 stig.
Miðvikudagur
Suðvestan hvassviðri eða stormur á norðvesturfjórðungi landsins fram eftir morgni annars sunnan 5-10 m/s. Rigning eða skúrir með ströndum sunnan til og vestan en sumstaðar slydda til landsins en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi til kvölds. Hiti 2-6 stig sunnan og vestanlands annars frost 0-6 stig mildast við sjóinn.
Horfur á fimmtudag og föstudag
Ákveðnar suðlægar áttir með vætu sunnan og vestan til en úrkomulítið norðan og austan til. Frostlaust sunnan og vestan til. Á föstudeginum verður hvassara og hlýrra.
Veðurspá gerð kl. 01:00, 7. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Rætist úr veðri sunnanlands á sunnudag og mánudag
Fyrsta ferðahelgin í einstöku veðri
Hitinn fór í 17,2 stig í gær - hlýrra í dag
Góða veðrið á leið norður
Borgarfjörðurinn einna hlýjastur í dag, 17 stig eða svo
