ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Hvasst, vætusamt og hlýtt

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
00:56 › 7. febrúar 2012
Hvasst verður sunnan lands og austan í dag.

Hvasst verður sunnan lands og austan í dag.

Vinnuvikan verður nokkuð brokkgeng þegar kemur að veðrinu. Lægðir verða í essinu sínu með breytilegu veðri. Það verða ágæt hlýindi á milli en hina kaldari daga sem koma á milli, verður þó hiti yfirleitt sæmilega yfir frostmarki sunnan og vestanlands. Dagurinn í dag verður vindasamur eða15-20 m/s sunnan og austan til og úrkoma um mest allt land.

Veðurspá einstaka daga

Þriðjudagur

Víðast sunnan og suðvestan verða 5-13 m/s en 15-20 m/s með ströndum sunnan og austan til. Rigning eða skúrir um mest allt land þegar líður á daginn. Hiti 4-10 stig en við frostmark á hálendinu.

Miðvikudagur

Sunnan 5-10 m/s. Rigning eða skurir með ströndum sunnan til og vestan en sumstaðar slydda til landsins en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 2-6 stig sunnan og vestan lands annars frost 0-6 stig mildast við sjóinn.

Horfur fimmtudag og föstudag

Ákveðnar suðlægar áttir með vætu sunnan og vestan til en úrkomulítið norðan og austan til. Frostlaust sunnan og vestan til. Á föstudeginum verður hvassara og hlýrra.

Veðurspá gerð kl. 00:30, 7. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?