ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Hlýnandi veður í kvöld og nótt

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
08:51 › 3. febrúar 2012
Það hvessir og hlýnar með vætu sunnan og vestanlands seint í kvöld og nótt.

Það hvessir og hlýnar með vætu sunnan og vestanlands seint í kvöld og nótt.

Lognmolla verður framan af deginum en síðan koma hlýindi upp að landinu sunnan og vestanverðu síðdegis með hvössum vindi.

Veðurspá einstaka daga

Sunnudagur

Vaxandi suðaustan átt sunnan og vestan til þegar líður á kvöldið með hlýnandi veðri, fyrst sunnan- og vestanlands. Úrkomulítið en fer að rigna sunnan og vestan til með kvöldinu en snjókoma eða slydda í fyrstu á Vestfjörðum. Yfirleitt frost en hlánar sunnan og vestan til síðdegis.

Mánudagur

Hvöss suðaustan átt á vesturhluta landsins annars hægari. Rigning eða skúrir en úrkomulítið norðan og austan til. Hiti 5-12 stig.

Þriðjudagur

Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Rigning eða skúrir um mest allt land þegar líður á daginn. Hiti 4-10 stig en við frostmark á hálendinu.

Veðurspá gerð kl. 18:48, 5. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?