ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Snjókoma eða slydda á norðurhluta landsins

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
06:58 › 21. febrúar 2012
Töluverð snjókoma fyrir nánast allan norðurhluta landsins er kortunum í dag

Töluverð snjókoma fyrir nánast allan norðurhluta landsins er kortunum í dag

Talsverður vetur er nú í kortunum fyrir norðanvert landið og má búast við talsverðri snjókomu eða éljum. Lægð er vestur af landinu og því margátta, hvasst norðvestan til með skafrenningi, ekki síst á fjallvegum.
Syðra verður hinsvegar skýjað með köflum en þar gætu fallið stöku skúrir eða él.
Hvasst verður hins vegar við suðurströndina á morgun.

Veðurhorfur fyrir einstaka daga

Miðvikudagur

Norðaustan 8-18 m/s á Vestfjörðum annars hæg norðlæg eða breytileg átt. Snjókoma eða slydda norðan og austan til annars stöku skúrir eða él. Frostlaust með ströndum en vægt frost til landsins.

Fimmtudagur

Austan hvassviðri eða stormur allra syðst með morgninum en snýst í fremur hvassa suðvestan átt með ströndum syðra þegar líður á daginn. Norðaustan hvassviðri á Vestfjörðum uppúr hádegi og fram eftir kvöldi. Rigning eða slydda á láglendi sunnan til annars snjókoma slydda. Frostlaust með ströndum annars vægt frost.

Föstudagur

Vestlægar áttir, 13-23 m/s allra syðst, hvassast með morgninum annars austan eða norðaustan 8-15, hvassast á Vestfjörðum. Lægir þegar líður á daginn. Skúrir eða él. Frostlaust á láglendi syðra annars vægt frost.

Helgarhorfur

Hæg breytileg átt og úrkomulítið á laugardag en stífar suðlægar áttir á sunnudag með vætu sunnan og vestan til og mildu veðri um allt land.

Veðurspá gerð kl. 06:59, 22. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?