ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Vetrarskot - víða snjókoma eða él

Sigurður Þ Ragnarsson siggistormur@dv.is
06:51 › 16. febrúar 2012
Það má alveg gauka að þeim, smáfuglunum, einhverju til að maula næstu daga.

Það má alveg gauka að þeim, smáfuglunum, einhverju til að maula næstu daga.

Jæja þá fáum við smá vetur að nýju. Frost verður víða á landinu, síst þó með ströndum en búast má við snjókomu eða éljum víða um land, síst þau austan til á landinu. Ekki virðist ætla að verða viðsnúningur hvað hita varðar alveg í bráð.

Veðurhorfur fyrir einstaka daga

Fimmtudagur

Hvassar suðvestlægar áttir með morgninum en síðan lægir smám saman, 8-13 m/s síðdegis. Snjókoma eða él, einkum til landsins. Frostlaust með ströndum en frost 2-6 stig til landsins.

Föstudagur

Snýst í allhvassa eða hvassa norðan og norðaustan átt, fyrst á Vestfjörðum og norðan til. Snjókoma norðanlands, stöku él syðra annars þurrt og bjart með köflum. Frost 1-6 stig.

Horfur á laugardag

Allhvöss eða hvöss norðan átt við austanvert landið í fyrstu en lægir smám saman. Hægari annars staðar. Stöku él norðan til og austan annars bjart veður. Frost 3-12 stig mildast með ströndum.

Horfur á sunnudag

Vestan eða suðvestan átt með éljum. Heldur hlýnandi með suður- og vesturströndinni.

Veðurspá gerð kl. 06:48, 16. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?