Vætusamt verður á landinu, síst þó eystra, en það verður hlýtt um allt land og nokkur blástur. -/Siggi stormur
Það verður myndarlegur blástur af suðvestri sérstaklega nyrðra. Það mun ganga á með vætu víða, síst þó eystra. Á fimmtudag fer kólnandi en fram að því verða ágætis hitatölur.
Veðurhorfur fyrir einstaka daga
Þriðjudagur
Suðvestan 8-15 m/s, stífastur nyrðra. Rigning eða súld sunnan og vestan til annars úrkomulítið. 4-10 stig.
Miðvikudagur
Allhvöss eða hvöss suðvestan átt með rigningu og síðar skúrum sunnan og vestan til en úrkomulítið eystra. Hlýtt í veðri.
Horfur á fimmtudag og föstudag
Hvöss suðvestan átt á fimmtudag með hviðukenndum vindi og éljum og kólnandi verðri og frystir til landsins. Á föstudag verður svipað veður nema að vindur verður hægari um allt land.
Veðurspá gerð kl. 06:51, 14. febrúar 2012. Sigurður stormur, veðurfræðingur


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Rætist úr veðri sunnanlands á sunnudag og mánudag
Fyrsta ferðahelgin í einstöku veðri
Hitinn fór í 17,2 stig í gær - hlýrra í dag
Góða veðrið á leið norður
Borgarfjörðurinn einna hlýjastur í dag, 17 stig eða svo
