Í dag var fyrsti dagurinn um nokkurt skeið þar sem vindur var sæmilega hægur með suðurströndinni. Það þýðir að nú ætti að vera hægt að hefjast handa við dýpkun Landeyjahafnar. Áfram verður milt í veðri en smám saman fer hitinn í eðlilegra horf miðað við það sem verið hefur. Þó er ekkert kuldakast í kortunum.
En veðurspár dagsins og næstu daga líta svona út:
Í kvöld fimmtudag
Austan og norðaustan 5-10 m/s. Skúraveður víða um land. Hiti 10-15 stig í kvöld.
Á morgun föstudag
Hæg austlæg átt víðast hvar en þó 5-10 m/s við suðurströndina. Skúrir en þurrt og bjart með köflum norðanlands. Hiti 10-16 stig svalast við suðaustur- og austurströndina.
Á laugardag
Hæg breytileg átt í fyrstu en suðvestan 5-10 m/s sunnan og vestan til undir kvöld. Rigning eða skúrir en úrkomulítið og skýjað með köflum suðaustan til á landinu. Hiti 11-16 stig, hlýjast á suðausturlandi.
Á sunnudag
Suðaustan 5-13 m/s, stífastur sunnan- og vestanlands. Talsverð rigning á Suður- og Vesturlandi en skýjað og úrkomulítið Norðaustan- og Austanlands. Hiti 10-15 stig að deginum.
Veðurspá gerð kl. 19:45, 9. september. SÞR.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Versnandi veður - stormviðvörun
Versnandi veður
Stormviðvörun á norðvesturfjórðungi landsins í nótt
Von á hvassviðri seinnipartinn
Hvasst, vætusamt og hlýtt