Dómari stal senunni í Idol-úrslitum
Bikiní-stúlkan vissi ekkert hvernig hún átti að láta þegar Kara DioGuardi sýndi stæltan líkamann í gær.
Idol-dómarinn Kara DioGuardi stal senunni í gærnótt þegar úrslit bandaríska Idolsins fóru fram. Hún flassaði fallegum likama sínum til að stríða þátttakandanum Katrinu Darrell sem er betur þekkt sem bikiní-stúlkan. ATHUGIÐ! Ekki lesa lengra ef þú vilt ekki vita hver vann Idolið.
Hinn sykursæti Kris Allen kom sá og sigraði í Idolinu í gær. Úrslitin komu mörgum á óvart þar sem flestir hefðu veðjað á að keppinautur hans, Adam Lambert, myndi fara með sigur af hólmi.
„Þetta er svakalegt. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Adam átti þetta skilið,“ segir sigurvegarinn við fréttastofu AP.
Allen er 23 ára strákur frá bænum Conway í Arkansas fylki. Það fór lítið fyrir honum í byrjun keppninnar en síðustu vikur hefur hann bætt sig gríðarlega og heillað bandarísku þjóðina upp úr skónum með hjartnæmum söng og gítarspili.
Bæði Allen og Lambert sungu þrjú lög hvor í gær. Lambert byrjaði keppnina með útgáfu sinni af Tears for Fears laginu Mad World. Þá steig Allen á stokk með gamla Bill Withers laginu Ain't No Sunshine. Því næst söng Lambert Sam Cooke lagið A Change is Gonna Come og Allen svaraði með What's Going On. Að lokum sungu báðir keppendurnir No Boundaries sem var sérstaklega samið fyrir sigurvegarann.
Úrslitaþátturinn var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 í gær og voru fjölmargir heimsfrægir listamenn sem prýddu sviðið og sungu með hinum ýmsu Idol keppendum. Má þar nefna gamla refinn Rod Stewart, Cindy Lauper, Kiss og Black Eyed Peas.
Sunnudagur 31. maí 2009 kl 14:36
Halle Berry og Jamie Foxx kela- MYNDIR
Sunnudagur 31. maí 2009 kl 10:13
Danshópurinn sem malaði Boyle- Myndband
Sunnudagur 31. maí 2009 kl 09:11
Léttklædd þokkagyðja -MYNDIR
Sunnudagur 31. maí 2009 kl 08:32
Kevin Smith bætir við fíflum
Laugardagur 30. maí 2009 kl 17:19
Jolie flutt á sjúkrahús
Laugardagur 30. maí 2009 kl 08:00
Avril Lavigne: Heldur þétt um brjóst sín -MYNDIR
Föstudagur 29. maí 2009 kl 11:33
Adam Lambert og bleiki fíllinn
Föstudagur 29. maí 2009 kl 11:00
Rihanna mun bera vitni gegn Brown
Föstudagur 29. maí 2009 kl 10:33
Cameron sturtar ekki niður
Föstudagur 29. maí 2009 kl 09:33
Sveinn Andri tapaði
Föstudagur 29. maí 2009 kl 08:29
Skyrtulaust sjarmatröll
Fimmtudagur 28. maí 2009 kl 12:52
Jessica aftur í raunveruleikasjónvarp
Fimmtudagur 28. maí 2009 kl 11:50
Frekja frá fæðingu
Fimmtudagur 28. maí 2009 kl 10:50
Ræðir stóra varamálið
Fimmtudagur 28. maí 2009 kl 09:50
Fékk Opruh í megrun
Fimmtudagur 28. maí 2009 kl 08:46
Cameron Diaz í góðu formi á ströndinni - myndir
Miðvikudagur 27. maí 2009 kl 12:08
Jennifer Aniston á dekurdýr
Miðvikudagur 27. maí 2009 kl 09:14
Hrikalega horuð Tori Spelling -MYNDIR
Miðvikudagur 27. maí 2009 kl 08:09
Sérvitur Suri borðar bara með prjónum
Þriðjudagur 26. maí 2009 kl 19:00











