Dita flassaði brjóstunum á æfingu

Dita hatar það nú ekki að fækka fötum í burlesque-sýningum sínum. Fær hún að gera það í Evróvisjón?

Dita hatar það nú ekki að fækka fötum í burlesque-sýningum sínum. Fær hún að gera það í Evróvisjón? AFP.

Föstudagur 15. maí 2009 kl 14:28

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Dita von Teese mætti til æfinga með Evróvisjón-förum Þýskalands í dag og vakti verðskuldaða athygli. Dita, sem er bandarísk og frægust fyrir eggjandi burlesque-danssýningar sínar og fyrir að hafa verið gift Marilyn Manson um tíma, náði að hrista laglega upp í siðapostulum Evróvisjón. Hún flassaði nefnilega mannskapinn á æfingu.

Dita, sem hefur viðurkennt að hafa aldrei heyrt af Evróvisjón keppninni fyrr en þýsku flytjendurnir í Alex Swings Oscar Sings höfðu samband við hana, tók þátt í sinni fyrstu æfingu með þeim félögum í dag. Mikil eftirvænting ríkti fyrir sýningunni. Og Dita olli engum vonbrigðum.

Hún flassaði brjóstunum eins og margir höfðu svosem búist við en hvort hún fái að gera það í sjónvarpinu á laugardagskvöldið er hæpið. Hún bar reyndar litrandi stjörnur yfir geirvörtunum en afar strangar reglur gilda um hverskonar nekt á sviði í Evróvisjón.

Þýska lagið, Miss Kiss Bang Bang, er 17. í röðinni á laugardaginn og mun karlpeningurinn eflaust bíða stjarfur við skjáinn í von um að Dita verði svolítið óþekk í Evróvisjón.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Mánudagur 25. maí 2009 kl 12:07

Fallegt barn á leiðinni

Mánudagur 25. maí 2009 kl 10:39

Ósiðleg Paris Hilton- myndir

Sunnudagur 24. maí 2009 kl 18:43

Þráir bjórvömb

Sunnudagur 24. maí 2009 kl 14:48

EIR orðinn afi

Sunnudagur 24. maí 2009 kl 09:13

Mini-Me flottur í Cannes

Laugardagur 23. maí 2009 kl 14:52

Líkt við Prison Break-stjörnu

Föstudagur 22. maí 2009 kl 16:33

Beyonce berar bossann í nýju myndbandi

Föstudagur 22. maí 2009 kl 15:00

Biel ekki alltaf fullkomin

Föstudagur 22. maí 2009 kl 14:17

Britney sleikir sólina

Föstudagur 22. maí 2009 kl 12:38

Safnar verðmiðum

Föstudagur 22. maí 2009 kl 11:35

Rihanna heiðruð fyrir vinsældirnar

Föstudagur 22. maí 2009 kl 10:45

Fullur Brad Pitt samþykkti kvikmyndahlutverk

Föstudagur 22. maí 2009 kl 09:44

Dennis Rodman er dólgur

Föstudagur 22. maí 2009 kl 08:57

Haglél á stærð við tennisbolta

Fimmtudagur 21. maí 2009 kl 15:47

Bláklædd Fergie flott í Idol

Fimmtudagur 21. maí 2009 kl 14:04

Britney spriklar í sjónum - myndir

Fimmtudagur 21. maí 2009 kl 10:27

Dómari stal senunni í Idol-úrslitum

Fimmtudagur 21. maí 2009 kl 07:30

Ásdís á forsíðu Maxim

Miðvikudagur 20. maí 2009 kl 20:54

Leikur Jamie Foxx Frank Sinatra?

Miðvikudagur 20. maí 2009 kl 17:24

Á Gibson von á barni með viðhaldinu?