Formaður KSÍ: Eiginkonan gekk á dyr

Einhleypur formaður: Nýuppkomið hneykslismál fjármálastjórans Pálma Jónssonar í Sviss og skilnaður formannsins Geirs skekja KSÍ.

Einhleypur formaður: Nýuppkomið hneykslismál fjármálastjórans Pálma Jónssonar í Sviss og skilnaður formannsins Geirs skekja KSÍ.

Föstudagur 20. nóvember 2009 kl 11:40

Höfundur: Svanur Snorrason (svanur@birtingur.is)

  • Það flæðir ekkert kampavín um höfuðstöðvar KSÍ í Laugardal þessa dagana. Mál Pálma Jónssonar hefur reynst KSÍ erfitt.

    Það flæðir ekkert kampavín um höfuðstöðvar KSÍ í Laugardal þessa dagana. Mál Pálma Jónssonar hefur reynst KSÍ erfitt.

Það gengur mikið á innan Knattspyrnusambands Íslands. Krítarkortanotkun fjármálastjóra sambandsins, Pálma Jónssonar, í Sviss vakti mikla athygli, og nú er formaður þess, Geir Þorsteinsson, að skilja við konu sína til margra ára.

„Já, það er rétt,“ segir Geir Þorsteinsson formaður Knattspyrnusambands Íslands við Séð og Heyrt spurður hvort hann sé að skilja, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um skilnaðinn eða ástæður hans.

Geir og kona hans, næringarþerapistinn Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir, sem er alltaf kölluð Inga, hafa ákveðið að skilja eftir áralanga sambúð. Þau eiga saman eina dóttur.

Það hefur gengið mikið á í herbúðum Knattspyrnusambandsins undanfarin misseri, en Pálmi Jónsson fjármálastjóri þess, komst í fréttirnar vegna notkunar á krítarkorti sambandsins á strippbúllu í Sviss. Málið olli miklum titringi og hefur til að mynda Femínístafélag Íslands krafist afsagnar stjórnar Knattspyrnusambandins og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra óskað eftir skýringum.

Geir glímir því ekki einasta við íslenska femínista og fjármálahneyksli þessa dagana heldur einnig skipbrot í einkalífinu.

Honum skaut uppá stjörnuhimininn í íslenska knattspyrnuheiminum þegar hann tók við embætti formanns Knattspyrnusambandsins af Eggerti Magnússyni árið 2007.

Geir er harður KR-ingur og starfaði lengi á vegum félagsins áður en hann hóf störf hjá Knattspyrnusambandinu, þykir skemmtilegur maður og þá ekki síst í samkvæmum og á ferðalögum erlendis.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 20:22

DVD útgáfu This is it frestað

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 18:14

Ricky Gervais varð fyrir barðinu á ansi lélegum þjófum

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 13:57

Rass í beinni

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 11:01

Nýju andlitin í 24

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 10:32

Hasselhoff tók Britney Spears

Mánudagur 30. nóvember 2009 kl 08:25

3,6 milljónir í jólaskraut

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 21:44

Gyllenhaal og Witherspoon hætt saman

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 19:05

Kom Tyson upp um öryggisleysi á LAX?

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 15:53

Sjokkerandi tískugyðja

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 11:30

Móðir Robbie Williams staðfestir trúlofun hans

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 07:00

Zombieland í 3D

Laugardagur 28. nóvember 2009 kl 20:34

Jay-Z vill verða pabbi

Laugardagur 28. nóvember 2009 kl 16:51

Hasselhoff fallinn? Sjúkrabíll sendur að heimili hans

Laugardagur 28. nóvember 2009 kl 11:38

Tiger og eiginkonan rifust heiftarlega fyrir slysið

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 21:25

Kim Kardashian: Hasarkroppur á Twitter

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 14:40

Ólekker eiginmaður með plömmer

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 13:40

Nínu-jakkarnir fundnir

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 12:40

Íris fann ástina

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 11:40

Chris Brown veður í skvísum

Föstudagur 27. nóvember 2009 kl 10:30

Hlakkar til að rífa sig úr