Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, er ósáttur við ríkisstjórnina og segir að að stjórnarandstaðan eigi að sameinast um málefni. Á vefsíðu sinni segir hann: „Skoðanakannanir benda til, að þjóðin vilji norræna velferð og uppboð veiðileyfa. Stjórnarandstaðan ætti að geta samið um slík atriði. Stundum þykjast flokkar, til dæmis Vinstri græn og Samfylkingin, hafa slíkar skoðanir, en renna ævinlega á rassinn, þegar til kastanna kemur. Út af valdamiklum íhaldsöflum innan flokkanna.“