Það hefur hins vegar verið tilefni til að opna einn kaldan á heimili Lífar Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna, eftir að könnunin birtist. Vinstri græn taka risastökk og mælast með ríflega 20 prósenta fylgi, meira en tvöfalda kjörfylgi sitt. Líf hefur setið undir hörðum árásum víðs vegar frá, einkum raunar frá eigin samherjum og sem hafa tengsl við fyrri oddvita, Sóley Tómasdóttur. Þeir hafa verið ósparir á að segja blaðamönnum að Líf sé ekki nógu sterkur kandídat til að leiða listann næsta vor, án þess þó að koma fram opinberlega. Miðað við þetta á Líf sér líf í borginni, og gott betur, enda hlyti hún að gera tilkall til borgarstjórastólsins yrðu þetta úrslit kosninganna.