En þrátt fyrir þetta hjaðna ekki bardagar og vega menn þar hver annan í mesta bróðerni. Nú ber svo við að boðaður hefur verið miðstjórnarfundur í flokknum 20. maí næstkomandi. Ekkert er svo sem óeðlilegt við það enda segir í samþykktum flokksins að halda skuli slíkan fund. En stuðningsfólk Sigmundar Davíðs mun hafa þrýst mjög á að slíkur fundur yrði haldinn og það sem fyrst. Sama fólk sá hins vegar enga ástæðu til þess að boðað yrði til flokksþings síðasta haust. Mun það skoðun þeirra að söguleg útreið flokksins í síðustu kosningum megi alfarið skrifa á Sigurð Inga og ræða þurfi þá frammistöðu á komandi miðstjórnarfundi.