fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Engin skýr mörk

Ritstjórn DV
Laugardaginn 20. maí 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkur óánægja er meðal Sjálfstæðismanna með borgarfulltrúa flokksins, sem þykja ekki hafa markað sér nógu sterkar áherslur og séu fyrir vikið ekki augljós valkostur í borgarstjórnarkosningunum á næsta ári. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Óli Björn Kárason, víkur að þessu í nýlegu lesendabréfi á miðopnu Morgunblaðsins. Hann segir Sjálfstæðismenn í borginni eiga mikið verk fyrir höndum. „Þeir eiga eftir að draga skýr mörk á milli sín og vinstri manna í borgarstjórn,“ segir Óli Björn. Það er kannski ekki laust við að örvænting felist í þessum orðum hans. Enda varla vænlegt til árangurs fyrir Sjálfstæðisflokkinn ef kjósendur sjá engan mun á áherslum hans og meirihlutans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu