fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sirrý sögð áhugasöm

Ritstjórn DV
Laugardaginn 8. apríl 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vandræðagangurinn er hins vegar ekki einskorðaður við Vinstri græn heldur hafa bæði Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn verulegar áhyggjur af stöðu mála innan sinna raða. Sjálfstæðismenn hafa raunar glímt við oddvitavandræða um langt skeið. Halldór Halldórsson sem kom að vestan til að rífa upp borgarstjórnarflokkinn hefur ekki reynst sá bjargvættur sem vonir stóðu til að hann yrði flokknum og ekki þykja næstu menn á listum, Kjartan Magnússon, Áslaug Friðriksdóttir eða Marta Guðjónsdóttir líkleg til afreka. Því er líklegt að einn ganginn enn verði reynt að sækja einhvern utanaðkomandi til starfans. Nafn Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra í Garðabæ, hefur verið nefnt í þeim efnum. Nýjasta nafnið sem heyrst hefur hvað varðar áhuga á oddvitasætinu er hins vegar Sirrý Hallgrímsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Illuga Gunnarssonar í menntamálaráðuneytinu. Ekki er ljóst hvað flokksforystunni þykir um þær hugmyndir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work