Nú þegar aðeins eru tæpir fjórtán mánuðir til næstu sveitarstjórnarkosninga eru forsvarsmenn flokkanna í Reykjavík farnir að ókyrrast verulega. Meðal þeirra eru áhrifamenn í Vinstri grænum sem leita nú logandi ljósi að frambærilegum kandídat til að leiða flokkinn í borgarstjórnarkosningunum sem fram eiga að fara 26. maí á næsta ári. Vinstri græn horfa til þess að oddviti flokksins hljóti að vera borgarstjóraefni þar eð fylgi flokksins, á landsvísu og í Reykjavík, gefi tilefni til að ætla að flokkurinn fái fimmtungs- eða fjórðungsfylgi í borginni, sé vel haldið á spöðunum. Það muni hins vegar aldrei gerast með núverandi oddvita, Líf Magneudóttur, sem efsta mann á lista. Þá sé ekki um auðugri garð að gresja þegar horft sé niður listann. Sagan segir að framámönnum flokksins sé slétt sama um hvort viðkomandi kandídat sé meðlimur í flokknum eða ekki, bara að einhver öflugur fáist til verksins.